Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði
AMPM-námið er ætlað þeim sem hafa lokið grunnnámi á háskólastigi og geta sýnt fram á starfsreynslu á sviði verkefnastjórnunar eða tengdra greina.
Hvernig eru hlutverk í verkefnastjórnun skilgreind?
Margir sinna verkefnastjórnun í starfi sínu eða einkalífi án þess að skilgreina það sérstaklega sem verkefnastjórnun.
Dæmi um viðeigandi reynslu:
- Innleiðing og breytingar: Innleiðing nýrra kerfa, skipulagsbreytingar og sameining fyrirtækja.
- Þróunar- og rannsóknarverkefni: Þátttaka í eða stjórnun þróunarverkefna og alþjóðlegra samstarfsverkefna.
- Stjórnun og skipulag: Teymisstjórnun, ábyrgð á verkþáttum og skipulag viðburða.
- Félags- og sjálfboðastarf: Umsjón með viðburðum, ferðum og öðrum verkefnum á vegum félagasamtaka.
Reynsla af verkefnastjórnun getur því verið fjölbreytt og er metin út frá eðli verkefna og ábyrgð umsækjanda.
Umsóknarferlið
Umsóknir í námið fara fram rafrænt í gegnum umsóknargátt Háskólans í Reykjavík: http://umsoknir.ru.is/. Umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði eru boðaðir í viðtal. Í viðtalinu er meðal annars lagt mat á menntun, starfs- og verkefnastjórnunarreynslu umsækjenda, ásamt áhuga þeirra og forsendum fyrir þátttöku í náminu.
Með umsókn skulu eftirfarandi gögn fylgja, á íslensku eða ensku:
- Ítarleg ferilskrá (CV): Þar komi fram menntun og starfsreynsla umsækjanda.
- Staðfest afrit af prófskírteinum og námsferli: Leggja skal fram opinber, staðfest afrit af prófskírteinum, námsferilsyfirlitum og öðrum viðeigandi gögnum um fyrra nám.
- Greinargerð: Stutt greinargerð þar sem umsækjandi lýsir áhuga sínum á náminu, fyrri reynslu og hvernig hún tengist verkefnastjórnun.
- Tveir meðmælendur: Nöfn tveggja meðmælanda eða tvö meðmælabréf. Meðmælabréfum má skila með rafrænni umsókn eða senda þau beint til umsjónaraðila MPM-námsins á netfangið mpm@ru.is.
- Öllum umsóknum er tekið með fullum trúnaði og þær meðhöndlaðar í samræmi við viðeigandi reglur um persónuvernd og trúnað.
AMPM-námið í verkefnastjórnun við Háskólann í Reykjavík leggur áherslu á að skapa fjölbreytt, lifandi og krefjandi námsumhverfi. Leitast er við að leiða saman nemendur með ólíkan bakgrunn, menntun og starfsreynslu og skapa þannig öflugt og samstarfsmiðað námsumhverfi þar sem fjölbreytt sjónarhorn og reynsla nemenda auðga námið.
Umsóknarfrestur
AMPM-námið tekur einungis við nýnemum að hausti.
- Umsóknarfrestur opnar: 5. febrúar
- Fyrri umsóknarfrestur rennur út: 30. apríl
- Síðari umsóknarfrestur rennur út: 5.júní
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfrestur er liðinn kunna að verða teknar til afgreiðslu í undantekningartilvikum. Nánari upplýsingar má fá hjá umsjónaraðila námsins í gegnum mpm@ru.is.
Skólagjöld
Upplýsingar um skólagjöld í AMPM-náminu má finna hér:
Alþjóðlegar vottanir
Markmið AMPM-námsins er að undirbúa nemendur fyrir alþjóðlega viðurkennda fagvottun á sviði verkefnastjórnunar sem hluta af náminu.
Vottunarstig sem nemendur stefna að ræðst meðal annars af fyrri starfs- og verkefnastjórnunarreynslu þeirra. Nemendur geta miðað við annað af eftirfarandi tveimur stigum:
- IPMA Level C® (Certified Project Manager)
- IPMA Level B® (Certified Senior Project Manager)
Hæfisskilyrði fyrir IPMA-vottun
IPMA Level C® Certification:
- Krafa um reynslu: Umsækjandi þarf að geta sýnt fram á að minnsta kosti þriggja ára reynslu af verkefnastjórnun í verkefnum af miðlungs flækjustigi á síðustu sex árum. Heimilt getur verið að framlengja viðmiðunartímabilið ef gild rök liggja að baki.
- Við umsókn: Umsækjandi þarf að hafa gegnt leiðandi hlutverki í verkefnastjórnun verkefna af miðlungs flækjustigi. Umsækjandi þarf að hafa gegnt slíku hlutverki í að lágmarki 10 mánuði á síðustu sex árum
- Samhliða AMPM-náminu: Nemendur sem uppfylla ekki fyrri reynslukröfuna við umsókn þurfa að leiða verkefni af miðlungs flækjustigi í samtals 18 mánuði samhliða náminu. Undanþága: Nemandi sem getur við umsókn sýnt fram á samtals 36 mánaða reynslu af verkefnastjórnun þarf ekki að uppfylla viðbótarkröfuna um 18 mánaða verkefnastjórnun samhliða AMPM-náminu.
IPMA Level B® Certification:
- IPMA Level B® er ætluð reyndum verkefnastjórum sem hafa umfangsmikla reynslu af því að stýra flóknum verkefnum og bera faglega ábyrgð á framkvæmd þeirra. Nánari upplýsingar um hæfisskilyrði, reynslukröfur og matsferli fyrir B-stigs vottun fást hjá námsstjórn AMPM.
Faggilding og fagleg viðurkenning
- AMPM-námið hefur uppfyllt viðmið Association for Project Management (APM) í Bretlandi fyrir Recognised Assessment sem hluta af ferlinu að viðurkenningu sem Chartered Project Professional (ChPP). Þessi viðurkenning styrkir stöðu AMPM-námsins og gerir útskrifuðum nemendum kleift að sækja um ChPP-viðurkenningu hjá APM að loknu námi, að því gefnu að þeir uppfylli gildandi skilyrði APM fyrir viðurkenningunni. ChPP-viðurkenningin er alþjóðlega virt fagleg viðurkenning sem staðfestir framúrskarandi faglega hæfni, reynslu og fagmennsku á sviði verkefnastjórnunar. Hún veitir útskrifuðum AMPM-nemendum því mikilvægt forskot í áframhaldandi starfsþróun og styrkir stöðu þeirra sem sérhæfðra verkefnastjórnunarfræðinga.
The application deadline for the AMPM programme is February 5 to June 5 for the subsequent fall semester. Applications received after the application deadline may be considered on a case-by-case basis.