Sköpun & Hreyfimyndagerð – Helgarnámskeið
Sköpun & Hreyfimyndagerð – Helgarnámskeið
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 8-12 ára
Um námskeiðið
Þetta helgarnámskeið er STEAM-miðað námskeið sem kynnir nemendur fyrir heimi hreyfimyndagerðar, myndrænnar frásagnar og stafrænnar sköpunar í gegnum gagnvirka og verklega vinnu.
Nemendur læra grunnatriði hreyfimyndagerðar, þar sem þeir kynnast því hvernig hreyfing er búin til með röð mynda og hvernig einfaldar teikningar eða hlutir geta orðið að lifandi hreyfimyndum á skjánum.
Á námskeiðinu fá nemendur að prófa mismunandi aðferðir í hreyfimyndagerð, svo sem flipbook-hreyfimyndir, stop-motion með hlutum eða LEGO og einfaldar stafrænar hreyfimyndir.
Skapandi verkefni námskeiðsins byggja á hugmyndum tengdum Heimsmarkmiðum um sjálfbæra þróun, þar sem nemendur skoða þemu eins og náttúru, sjálfbærni, umhverfisvitund og framtíð jarðarinnar og notfæra sér þær hugmyndir sem innblástur fyrir hreyfimyndaverkefni sín.
Áhersla er lögð á tengingu vísinda, tækni, verkfræði, lista og stærðfræði (STEAM) ásamt sköpun, að veita hlutum eftirtekt, lausnamiðaðri hugsun og samvinnu.
Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði, stafræna færni og vitund nemenda um umhverfi og samfélag, á meðan þeir læra hvernig hugmyndir og það sem við komum auga á úti í heimi getur orðið að lifandi hreyfimyndum.
Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði, stafræna færni og vitund nemenda um umhverfi og samfélag, á meðan þeir læra hvernig hugmyndir og athuganir úr heiminum í kringum okkur geta orðið að lifandi hreyfimyndum.
Skipulag og verð
- Dagar: laugardagur og sunnudagur
- Tími: 13:00–16:00
- Verð: 15.900 kr. fyrir helgina (6 klukkustundir samtals)
- Dagsetningar: 14. og 15. nóvember 2026
Hagnýtar upplýsingar
- Systkinaafsláttur: 15% afsláttur fyrir hvert systkini úr sömu fjölskyldu
- Skráning í gegnum Sportabler
- Hafa samband: Starfsfólk Skema — skema@ru.is, 599 6300