Námið
Rannsóknir
HR
Tæknifræðideild

Byggingariðnfræði

Námstími
3 ár
Einingar
90 ECTS
Prófgráða
Diplóma
Lögverndað starfsheiti
Byggingariðnfræðingur
Skiptinám mögulegt
Nei
Fjarnám mögulegt

Hvað læri ég

Námið hentar vel fyrir fólk í atvinnulífinu sem vill styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Nemendur í byggingariðnfræði fá góða undirstöðu fyrir störf í byggingariðnaði með því að ljúka fjölbreyttum námskeiðum og hagnýtu lokaverkefni. Helstu námsgreinar eru byggingafræði, burðarþolsfræði, tölvustudd hönnun í Revit, rekstur og stjórnun og efnisfræði.

Aukin tækifæri

Nemendur í iðnfræði fá fjölbreytta og hagnýta þekkingu á sínu sviði, styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og verða hæfari til að takast á við fleiri og fjölbreyttari störf. Með því að ljúka náminu getur nemandi öðlast meistararéttindi og lögverndað starfsheiti sem iðnfræðingur.

Að diplómanámi loknu er hægt að halda áfram námi í byggingafræði sem er BSc-nám og er iðnfræðin metin að fullu inn í það nám.

Starfssvið byggingariðnfræðinga er fjölbreytt. Þeir starfa hjá verktakafyrirtækjum, á verkfræðistofum og við byggingaeftirlit eða sem stjórnendur á byggingastað.

Þekking og færni

Í lærdómsviðmiðum má sjá hvaða þekkingu, leikni og hæfni nemendur eiga að búa yfir að námi loknu.

Mér finnst kostur að iðnfræðinámið er kennt í fjarnámi, maður er þá frjálsari en þarf að skipuleggja sig vel. Þetta er skemmtilegt og áhugavert nám, hef aldrei haft jafn mikinn áhuga og einmitt nú á því að læra og fræðast. Þar sem þetta er fjarnám átti ég ekki von á því að það væri eitthvað félagslíf, þess vegna kemur það mér mjög á óvart hvað maður kynnist mörgum og eignast góða félaga. Það líður varla sá dagur að ég heyri ekki í einhverjum sem er með mér í náminu.  Ég mæli hiklaust með þessu námi.

Gísli Gunnar Pétursson
Iðnfræði

Hvernig læri ég?

Staðarlotur

Byggingariðnfræði er kennd í fjarnámi og er sniðin að þeim sem eru á vinnumarkaði hvar sem er á landinu eða jafnvel erlendis. Byggingariðnfræði er 90 ECTS eininga nám. Kennt er í fjarnámi með tveimur staðarlotum á önn, eina helgi í senn. Námið er skipulagt þannig að yfirleitt tekur þrjú ár að ljúka því samhliða vinnu.

Staðarlotur eru tvisvar á önn sú fyrri í upphafi annar og sú síðari þegar sjö vikur eru liðnar af önninni. Fyrir nemendur sem stunda hlutanám með vinnu skv. námsskipulagi er hver lota frá föstudegi til sunnudags.

Dagskrá og nánari upplýsingar um hverja staðarlotu eru birtar tímanlega í kennslukerfi HR.

Nemendur í iðnfræði geta víða á landsbyggðinni fengið aðstöðu til náms og hópavinnu í símenntunarstöðvum, fræðslusetrum og háskólasetrum en á höfuðborgarsvæðinu býðst nemendum vinnuaðstaða í HR. Upplýsingar um slíka aðstöðu utan Reykjavíkur er að finna hjá sveitarfélögum.

Raunhæf verkefni í staðarlotum

Í sumum námskeiðum eru staðarloturnar nýttar fyrir verklegar æfingar og einnig er farið í fyrirtæki og verkefni unnin í raunumhverfi. Í byggingariðnfræði gera nemendur meðal annars steypugreiningu á húsi og gera steypustyrktaræfingar.

Viðamikið lokaverkefni

Náminu lýkur með 10 ECTS eininga lokaverkefni þar sem sýnt er fram á verkþekkingu og faglega hæfni. Verkefnin eru oftast unnin í samstarfi við fyrirtæki eða stofnanir.

CDIO-samstarfsnetið

Tæknifræðideild er aðili að CDIO, samstarfsneti framsækinna háskóla um allan heim sem kenna tæknigreinar. CDIO stendur fyrir Conceive – Design – Implement – Operate. Samkvæmt hugmyndafræðinni sem höfð er til hliðsjónar er tæknifólki framtíðarinnar veittur traustur, fræðilegur grunnur. Þau vinna þar að auki raunhæf verkefni ásamt því að leysa verkefni í hópum. Nemendur kunna því á ferlið frá hugmynd yfir í hönnun, framkvæmd og rekstur þegar þeir koma á vinnumarkaðinn.

Í CDIO-aðferðafræðinni er lögð áhersla á samráð háskóla og atvinnulífs og fagfélaga. Mótun námsbrauta í anda CDIO á að tryggja að nemendur öðlist lausnamiðaða og tæknilega færni sem vinnuveitendur sækjast eftir, án þess að slegið sé af fræðilegum kröfum.

Aðrir skólar í CDIO eru meðal annars:

  • DTU - Danmarks Tekniske Universitet
  • Chalmers University of Technology
  • Aalborg University
  • MIT - Massachusetts Institute of Technology
  • Delft University of Technology

Að námi loknu

Lögverndað starfsheiti

Til að útskrifast sem iðnfræðingur þarf nemandi að hafa lokið sveinsprófi í iðngrein á viðkomandi sviði og veitir námið þá rétt til meistarabréfs. Að loknu námi hlýtur nemandinn prófgráðuna diplóma í iðnfræði og uppfyllir skilyrði til að hljóta lögverndað starfsheiti sem iðnfræðingur.

Sýslumenn sjá um að gefa út iðnmeistarabréf.

Rekstrarfræði

Nemendur geta einnig, að loknu diplómanámi í byggingariðnfræði, bætt við sig 45 ECTS eininga námi í rekstrarfræði. Þar auka nemendur færni sína í rekstri og stjórnun framleiðslufyrirtækja.

Byggingafræði

Að loknu námi í byggingariðnfræði geta nemendur haldið áfram námi í byggingafræði sem er 210 eininga BSc-nám og er iðnfræðin (90 einingar) metin að fullu inn í það nám.

Tæknifræði

Útskrifaðir iðnfræðingar geta fengið hluta af námi sínu metið inn í tæknifræðinám tæknifræðideildar. Með þessu fæst góð samfella í námi við deildina ef nemendur kjósa að halda áfram í frekara háskólanám. Iðnfræðingar þurfa eftir atvikum að bæta við sig einni vorönn í Háskólagrunni. Uppfylli viðkomandi lágmarkseinkunn fær hann 38 ECTS metnar inn í byggingartæknifræði.

Iðnfræði metin

Útskrifaðir iðnfræðingar geta fengið hluta af námi sínu metið inn í tæknifræðinám tæknifræðideildar. Til að hefja nám tæknifræði þarf  iðnfræðingur eftir atvikum að bæta við sig einni önn í Háskólagrunni. Uppfylli viðkomandi lágmarkseinkunn fæst eftirfarandi metið:

  • Byggingariðnfræðingar fá 38 ECTS einingar metnar inn í byggingartæknifræði
  • Rafmagnsiðnfræðingar fá 30 ECTS einingar metnar inn í rafmagnstæknifræði og 24 ECTS einingar metnar inn í iðnaðar- og orkutæknifræði
  • Véliðnfræðingar fá 29 ECTS einingar metnar inn í orku- og véltæknifræði og 29 ECTS einingar metnar inn í iðnaðar- og orkutæknifræði

Verkefnin eru hagnýt og praktísk og þau hafa verið mér gott veganesti t.a.m. hefur verið skemmtilegt að kynnast þrívíddar hönnun

Eðvald Ragnarsson - Nemi í iðnfræði

Skipulag náms

Námstími

Námið er 90 ECTS einingar. Hægt er að ljúka því á þremur árum (6 annir) samhliða vinnu. Möguleiki er á að ljúka náminu á skemmri tíma, en þá er það tekið sem fullt nám í 3-4 annir. Nemendur sem kjósa að taka fullt nám lenda í árekstri í staðarlotum og geta því ekki setið þær allar. Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri námsins.

Fjarnám með staðarlotum 

Kennt í fjarnámi með staðarlotum. Tvær verkefnalotur eru á önn þar sem nemendur koma saman í HR eina helgi í hvert skipti. Í sumum áföngum eru staðarloturnar nýttar fyrir verklegar æfingar og einnig er farið í fyrirtæki og verkefni unnin í raunumhverfi.

Fyrri staðarlotan er í upphafi annar, og sú síðari þegar um sjö vikur eru liðnar af önninni.

Haust
Burðarþolsfræði
AI BUÞ1003 / 6 ECTS
Tölvustudd hönnun í Revit og Autocad
BI HON1003 / 6 ECTS
Reikningshald
AI REH1103 / 6 ECTS
Vor
Burðarþol byggingarvirkja
BI BUÞ2013 / 6 ECTS
Byggingarfræði – byggingartækni
BI BFR1013 / 6 ECTS
Stjórnun, rekstur og öryggi
AI STJ1002 / 4 ECTS
Upplýsingalíkön í mannvirkjagerð
BI BIM1001 / 2 ECTS

Ertu með spurningar um námið?

Inntökuskilyrði

Lágmarkskrafa til að hefja nám í iðnfræði er að hafa lokið bóklegu námi til sveinsprófs frá skilgreindri rafiðngrein. Til að útskrifast sem iðnfræðingur þarf að hafa lokið sveinsprófi.

Bóklegur undirbúningur  

Þau sem lokið hafa bóklegu námi til sveinsprófs geta þurft að taka allt að fjögur undirbúningsnámskeið í fjarnámi, samhliða iðnfræðináminu. Í boði eru grunnar í stærðfræði, eðlisfræði, íslensku og ensku og eru umsækjendum tilkynnt í svarbréfi hvort og þá hvaða grunna þeir þurfa að taka. Nauðsynlegt er að hafa lokið þeim grunnum sem hver og einn þarf að taka áður en farið er á 5. önn í náminu. Greitt er sérstaklega fyrir hvert og eitt námskeið, þau eru ekki innifalin í skólagjöldum.

Meistarar og stúdentar 

Þau sem lokið hafa meistaranámi í iðngrein, eða stúdentsprófi, uppfylla kröfur um bóklegan undirbúning og geta hafið nám í iðnfræði án frekari undirbúnings. 

Umsóknarfrestur

Tekið er við umsóknum fyrir haustönn frá 5. febrúar til 5. júní ár hvert.

Fylgiskjöl með umsókn
  • Námsferill
  • Sveinsbréf eða meistarabréf
  • Starfsferill, etv. meðmæli
Námstími
3 ár
Einingar
90 ECTS
Prófgráða
Diplóma
Lögverndað starfsheiti
Byggingariðnfræðingur
Skiptinám mögulegt
Nei
Fjarnám mögulegt
Guðrún Lilja Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri byggingafræði, iðnfræði og rekstrarfræði
Vissir þú að ...

Þeir sem hafa lokið iðnfræðinámi geta lokið Háskólagrunni HR á einni önn (vorönn) og svo hafið nám í tæknifræði.

Aðstaða

Þjónusta og góður aðbúnaður

Öll kennsla fer fram í háskólabyggingu HR. Þar er lesaðstaða og bókasafn, aðstaða til verklegrar kennslu, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.

Verkleg kennsla

Í HR er áhersla lögð á verkkunnáttu og þjálfun ásamt fræðilegri undirstöðu. Því er aðstaða til verklegrar kennslu til fyrirmyndar.

Byggingastofa

Í náminu hafa nemendur aðgang að byggingastofu sem er mikilvægur þáttur í iðnfræðináminu því þar er bilið brúað milli þess fræðilega og þess hagnýta.

Kennslustofur og lesaðstaða

Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn.

Nemendur í iðnfræði geta víða á landsbyggðinni fengið aðstöðu til náms og hópavinnu í símenntunarstöðvum, fræðslusetrum og háskólasetrum, en á höfuðborgarsvæðinu býðst nemendum vinnuaðstaða í HR. Upplýsingar um slíka aðstöðu utan Reykjavíkur er að finna hjá sveitarfélögum.

Góð þjónusta

Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.

Verslanir og kaffihús

Í HR er Krambúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.

Kennarar

Sérfræðiþekking og reynsla

Nemendur í iðnfræði njóta leiðsagnar öflugra kennara á fagsviðinu, tæknimanna og hönnuða innan háskólans, og fjölda stundakennara með sérfræðiþekkingu úr atvinnulífinu. Kennarar við HR eru að jafnaði í miklum samskiptum við nemendur.

Aldís Ingimarsdóttir

Aldís Ingimarsdóttir, háskólakennari og fagstjóri byggingasviðs

Fagstjóri á byggingasviði ITD.  Aldís kennir áfanga í jarðtækni, vega- og gatnagerð, vatns og fráveituhönnun og hefur haft umsjón með sérverkefnum og lokaverkefnum á þessum sviðum í byggingartæknifræði við HR. Hún sér um inngangsnámskeiðið í tæknifræði á fyrsta ári. Einnig kennir hún námskeið í jarðtækni í byggingariðnfræðinni. Aldís hefur verið við HR síðan árið 2007, fyrst sem stundakennari og svo fastráðin frá  hausti 2015.

Aldís lauk MSc-prófi í byggingarverkfræði  frá Tækniháskóla Danmerkur (DTU ) 1996. Eftir nám starfaði hún á verkfræðistofunni Fjölhönnun við gatna- og vegahönnun og ýmsa hönnun á sviði byggingarverkfræði. Hún var meðeigandi að Fjölhönnun 2000 til 2006 og tók þá þátt í stjórnun og rekstri fyrirtækisins. Aldís er umferðaröryggisrýnir sem er leyfi til að taka út vegamannvirki út frá umferðaröryggi, slíkt leyfi er gefið út af Samgöngustofu.  Einnig er hún formaður Jarðtæknifélags Íslands (JTFÍ) en félagið er á mikilli sókn að auka þekkingu og áhuga á jarðtækni.

Áhugamál Aldísar er ferðamennska og uppáhaldið eru jeppaferðir allann ársins hring. Hún vill gjarnan stuðla að frelsi til að ferðast að vetri til á snjó og þess vegna er hún í stjórn Ferðaklúbbsins 4x4. 

Jens Arnljótsson

Jens Arnljótsson, Lektor og námsbrautarstjóri í iðnfræði

Aðal kennslugreinar eru á sviði varmafræði, varmaflutnings, rennslis-  og straumfræði sem tengjast m.a. hagnýtu hönnunarverkefni eða tilraunum á sviði varma og streymisfræði í námi vél- og orkutæknifræðinema. Einnig hefur Jens umsjón með iðnfræðinámi í HR og lokaverkefnum véliðnfræðinema.

Menntun: Ingeniør højskolen Helsingør Teknikum 1986, véltæknifræðingur BSc Mech. Eng, með orkufræði sem sérsvið. Fyrri störf: Verkfræðistofa Stefáns A. Stefánssonar, hönnun ýmiss vélbúnaðar, lagna og rennslikerfa, þó einkum vinna tengd sjávarútvegi og þá sérstaklega varmagreining og varmendurvinnsla á orku frá útblæstri fiskimjölsverksmiðja víðs vegar um landið, Stálvík hf. og Skipahönnun ehf., við hönnun, breytingar og fyrirkomulag vélbúnaðar í fiskiskipum.

Eyþór Rafn Þórhallsson

Eyþór Rafn Þórhallsson, dósent

Kennir hönnunarnámskeið í byggingafræði og er leiðbeinandi með lokaverkefnum byggingaiðnfræðinga og byggingafræðinga. Eyþór kennir jafnframt valnámskeið í burðarvirkjum í byggignartæknifræðináminu.

Eyþór hefur kennt fjölda námskeiða á sviði hönnunar og burðarþols þá bæði í byggingartæknifræði og  í meistaranámi byggingaverkfræði, jafnframt hefur hann verið leiðbeinandi við fjölda lokaverkefna  á öllum brautum byggingasviðs, þ.e.a.s. iðnfræði, byggingafræði, tæknifræði og meistaranáms í verkfræði. Eyþór hefur mikla reynslu af burðarþolshönnun og framkvæmdum á mannvirkjum þá meðal annars á sviði íbúðarbygginga, verslunar- og skrifstofuhúsnæðis, iðnaðarhúsnæðis og hönnun á vatnsaflsvirkjunum. Undanfarin ár hefur Eyþór staðið fyrir umfangsmiklum rannsóknum á notkun basalttrefjabendingar í mannvirkjum og birt fjölda vísindagreina, sjá nánar á sel.ru.is.

Eyþór lauk prófi í byggingartæknifræði frá TÍ 1984, próf í iðnrekstrarfræði við TÍ 1985 og MSc-prófi í byggingaverkfræði frá Heriot Watt, Skotlandi 1988 með áherslu á burðarvirki.

Af hverju iðnfræði í HR?

  • Löggilt starfsheiti sem iðnfræðingur
  • Nemendur sem eru með sveinspróf geta sótt um meistarabréf í tilsvarandi iðngrein
  • Góð aðstaða til bóklegs og verklegs náms
  • Traust undirstaða
  • Hagnýt og raunhæf verkefni
Fara efst