Námið
Rannsóknir
HR
Tæknifræðideild

Rafiðnfræði

Námstími
3 ár
Einingar
90 ECTS
Prófgráða
Diplóma
Lögverndað starfsheiti
Rafiðnfræðingur
Skiptinám mögulegt
Nei
Fjarnám mögulegt

Hvað læri ég?

Námið hentar vel fyrir fólk í atvinnulífinu sem vill styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Námið veitir góðan undirbúning með fjölbreyttum námskeiðum, raunhæfum verkefnum og hagnýtu lokaverkefni. Helstu námsgreingar eru rafmagnsfræði, raforkukerfisfræði og rafvélar, raflagnahönnun, iðntölvustýringar, stjórnun og rekstur fyrirtækja ásamt hagnýtu lokaverkefni.

Aukin tækifæri

Nemendur í iðnfræði öðlast fjölbreytta og hagnýta þekkingu á sínu sviði, styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og verða hæfari til að takast á við fleiri og fjölbreyttari störf. Með því að ljúka náminu getur nemandi öðlast meistararéttindi og lögverndað starfsheiti sem iðnfræðingur.

Starfsvið rafiðnfræðinga er fjölbreytt. Þeir fást meðal annars við hönnun, uppsetningu og eftirliti með stýri-, lýsingar- og raflagnakerfum. Þeir starfa meðal annars á verkfræðistofum og hjá orku- og framleiðslufyrirtækjum við hönnun raflagna og við uppsetningu ýmissa rafmagns- og stýrikerfa.

Þekking og færni

Í lærdómsviðmiðum má sjá hvaða þekkingu, leikni og hæfni nemendur eiga að búa yfir að námi loknu.

Mér finnst kostur að iðnfræðinámið er kennt í fjarnámi, maður er þá frjálsari en þarf að skipuleggja sig vel. Þetta er skemmtilegt og áhugavert nám, hef aldrei haft jafn mikinn áhuga og einmitt nú á því að læra og fræðast. Þar sem þetta er fjarnám átti ég ekki von á því að það væri eitthvað félagslíf, þess vegna kemur það mér mjög á óvart hvað maður kynnist mörgum og eignast góða félaga. Það líður varla sá dagur að ég heyri ekki í einhverjum sem er með mér í náminu.  Ég mæli hiklaust með þessu námi.

Gísli Gunnar Pétursson
Iðnfræði

Hvernig læri ég?

Staðarlotur

Rafiðnfræði er kennd í fjarnámi og er sniðin að þeim sem eru á vinnumarkaði hvar sem er á landinu eða jafnvel erlendis. Rafiðnfræði er 90 ECTS eininga nám. Kennt er í fjarnámi með tveimur staðarlotum á önn, eina helgi í senn. Námið er skipulagt þannig að yfirleitt tekur þrjú ár að ljúka því samhliða vinnu.

Nemendur í iðnfræði geta víða á landsbyggðinni fengið aðstöðu til náms og hópavinnu í símenntunarstöðvum, fræðslusetrum og háskólasetrum, en á höfuðborgarsvæðinu býðst nemendum vinnuaðstaða í HR. Upplýsingar um slíka aðstöðu utan Reykjavíkur er að finna hjá sveitarfélögum.

Raunhæf verkefni í staðarlotum

Í sumum námskeiðum eru staðarloturnar nýttar fyrir verklegar æfingar og verkefni unnin í raunumhverfi. Í rafiðnfræði setja nemendur meðal annars upp iðntölvustýringar í verklegum stofum, hanna stafræn ökutæki og ljúka verklegu námskeiði í kælitækni á vélaverkstæði.

Viðamikið lokaverkefni

Náminu lýkur með 10 ECTS eininga lokaverkefni þar sem sýnt er fram á verkþekkingu og faglega hæfni. Verkefnin eru oftast unnin í samstarfi við fyrirtæki eða stofnanir.

CDIO-samstarfsnetið

Tæknifræðideild er aðili að CDIO, samstarfsneti framsækinna háskóla um allan heim sem kenna tæknigreinar. CDIO stendur fyrir Conceive – Design – Implement – Operate. Samkvæmt hugmyndafræðinni sem höfð er til hliðsjónar er tæknifólki framtíðarinnar veittur traustur, fræðilegur grunnur. Þau vinna þar að auki raunhæf verkefni ásamt því að leysa verkefni í hópum. Nemendur kunna því á ferlið frá hugmynd yfir í hönnun, framkvæmd og rekstur þegar þeir koma á vinnumarkaðinn.

Í CDIO-aðferðafræðinni er lögð áhersla á samráð háskóla og atvinnulífs og fagfélaga. Mótun námsbrauta í anda CDIO á að tryggja að nemendur öðlist lausnamiðaða og tæknilega færni sem vinnuveitendur sækjast eftir, án þess að slegið sé af fræðilegum kröfum.

Aðrir skólar í CDIO eru meðal annars:

  • DTU - Danmarks Tekniske Universitet
  • Chalmers University of Technology
  • Aalborg University
  • MIT - Massachusetts Institute of Technology
  • Delft University of Technology

Að námi loknu

Lögverndað starfsheiti

Til að útskrifast sem iðnfræðingur þarf nemandi að hafa lokið sveinsprófi í iðngrein á viðkomandi sviði og veitir námið þá rétt til meistarabréfs. Að loknu námi hlýtur nemandinn prófgráðuna diplóma í iðnfræði og uppfyllir skilyrði til að hljóta lögverndað starfsheiti sem iðnfræðingur.

Sýslumenn sjá um að gefa út iðnmeistarabréf.

Rekstrarfræði

Nemendur geta einnig, að loknu diplómanámi í rafiðnfræði, bætt við sig 45 ECTS eininga námi í rekstrarfræði. Með því auka nemendur færni sína í rekstri og stjórnun framleiðslufyrirtækja.

Tæknifræði

Útskrifaðir iðnfræðingar geta fengið hluta af námi sínu metið inn í tæknifræðinám tæknifræðideildar. Með þessu fæst góð samfella í námi við deildina ef nemendur kjósa að halda áfram í frekara háskólanám. Iðnfræðingar þurfa eftir atvikum að bæta við sig einni vorönn í Háskólagrunni. Uppfylli viðkomandi lágmarkseinkunn fást 30 ECTS metnar inn í rafmagnstæknifræði.

Iðnfræði metin

Útskrifaðir iðnfræðingar geta fengið hluta af námi sínu metið inn í tæknifræðinám tæknifræðideildar. Til að hefja nám í tæknifræði þarf  iðnfræðingur eftir atvikum að bæta við sig einni önn í Háskólagrunni. Uppfylli viðkomandi lágmarkseinkunn fæst eftirfarandi metið:

  • Byggingariðnfræðingar fá 38 ECTS einingar metnar inn í byggingartæknifræði
  • Rafmagnsiðnfræðingar fá 30 ECTS einingar metnar inn í rafmagnstæknifræði og 24 ECTS einingar metnar inn í iðnaðar- og orkutæknifræði
  • Véliðnfræðingar fá 29 ECTS einingar metnar inn í orku- og véltæknifræði og 29 ECTS einingar metnar inn í iðnaðar- og orkutæknifræði

Verkefnin eru hagnýt og praktísk og þau hafa verið mér gott veganesti t.a.m. hefur verið skemmtilegt að kynnast þrívíddar hönnun

Eðvald Ragnarsson - nemi í iðnfræði

Skipulag náms

Námstími

Námið er 90 ECTS einingar. Hægt er að ljúka því á þremur árum (sex önnum) samhliða vinnu. Möguleiki er á að ljúka náminu á skemmri tíma, en þá er það tekið sem fullt nám í 3-4 annir og ljúka nemendur þá um 30 ECTS á önn. Nemendur sem kjósa að taka fullt nám lenda í árekstri í staðarlotum og geta því ekki setið þær allar. Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri námsins.

Fjarnám með staðarlotum

Kennt í fjarnámi með tveimur staðarlotum á önn þar sem nemendur koma saman í HR eina helgi í hvert skipti. Í sumum námskeiðum eru staðarloturnar nýttar til verklegra æfinga og einnig er farið í fyrirtæki og verkefni unnin í raunumhverfi. Fyrri staðarlotan er í upphafi annar, og sú síðari þegar um sjö vikur eru liðnar af önninni.

Haust
Rafmagnsfræði
RI RAF1003 / 6 ECTS
Reikningshald
AI REH1103 / 6 ECTS
Tölvustudd hönnun í Revit og AutoCad
RI HON1003 / 6 ECTS
Vor
Rafeindatækni
RI REI1003 / 6 ECTS
Raforkukerfisfræði og rafvélar
RI RFR1003 / 6 ECTS
Stjórnun, rekstur og öryggi
AI STJ1002 / 4 ECTS

Ert þú með spurningar um námið?

Inntökuskilyrði

Lágmarkskrafa til að hefja nám í iðnfræði er að hafa lokið bóklegu námi til sveinsprófs frá skilgreindri rafiðngrein. Til að útskrifast sem iðnfræðingur þarf að hafa lokið sveinsprófi.

Bóklegur undirbúningur  

Þau sem lokið hafa bóklegu námi til sveinsprófs geta þurft að taka allt að fjögur undirbúningsnámskeið í fjarnámi, samhliða iðnfræðináminu. Í boði eru grunnar í stærðfræði, eðlisfræði, íslensku og ensku og eru umsækjendum tilkynnt í svarbréfi hvort og þá hvaða grunna þeir þurfa að taka. Nauðsynlegt er að hafa lokið þeim grunnum sem hver og einn þarf að taka áður en farið er á 5. önn í náminu. Greitt er sérstaklega fyrir hvert og eitt námskeið, þau eru ekki innifalin í skólagjöldum.

Meistarar og stúdentar 

Þau sem lokið hafa meistaranámi í iðngrein, eða stúdentsprófi, uppfylla kröfur um bóklegan undirbúning og geta hafið nám í iðnfræði án frekari undirbúnings. 

Umsóknarfrestur

Tekið er við umsóknum fyrir haustönn frá 5. febrúar til 5. júní ár hvert.

Fylgiskjöl með umsókn
  • Námsferill
  • Sveinsbréf eða meistarabréf
  • Starfsferill, etv. meðmæli
Námstími
3 ár
Einingar
90 ECTS
Prófgráða
Diplóma
Lögverndað starfsheiti
Rafiðnfræðingur
Skiptinám mögulegt
Nei
Fjarnám mögulegt
Guðrún Lilja Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri byggingafræði, iðnfræði og rekstrarfræði

Aðstaða

Þjónusta og góður aðbúnaður

Kennsla í staðarlotum fer fram í háskólabyggingu HR. Þar er lesaðstaða og bókasafn, aðstaða til verklegrar kennslu, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.

Verkleg kennsla

Í HR er áhersla lögð á verkkunnáttu og þjálfun ásamt fræðilegri undirstöðu. Því er aðstaða til verklegrar kennslu til fyrirmyndar.

Rafeindatæknistofa

Í rafeindatæknistofu er unnið að verkefnum og tilraunum á sviði rafeindatækni, rafmagnsfræði, raforku, stýringum og sjálfvirkni. Stofan býður upp á nútímalega aðstöðu fyrir nemendur sem vinna allt frá verklegum tilraunum í einstaka námskeiðum yfir í lokaverkefni í grunn- og meistaranámi. Tækjabúnaður er reglulega endurnýjaður til að mæta þróun náms og því sem atvinnulífið kallar á og hafa nemendur einnig aðgang að þrívíddarprenturum og fjölbreyttum íhlutalager. Ábyrgðarmenn rafeindatæknistofu eru Hannes Páll Þórðarson og Indriði Sævar Ríkharðsson.

Kennslustofur og lesaðstaða

Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn.
Nemendur í iðnfræði geta víða á landsbyggðinni fengið aðstöðu til náms og hópavinnu í símenntunarstöðvum, fræðslusetrum og háskólasetrum, en á höfuðborgarsvæðinu býðst nemendum vinnuaðstaða í HR. Upplýsingar um slíka aðstöðu utan Reykjavíkur er að finna hjá sveitarfélögum.

Góð þjónusta

Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.

Verslanir og kaffihús

Í HR er verslun sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.

Kennarar

Sérfræðiþekking og reynsla

Nemendur í iðnfræði njóta leiðsagnar öflugra kennara á fagsviðinu, tæknimanna og hönnuða innan háskólans, og fjölda stundakennara með sérfræðiþekkingu úr atvinnulífinu. Kennarar við HR eru að jafnaði í miklum samskiptum við nemendur.

Guðmundur Kristjánsson
Háskólakennari og fagstjóri rafmagnssviðs
Hannes Páll Þórðarson
umsjónarmaður rafeindaverkstæðis

Af hverju iðnfræði við HR?

  • Löggilt starfsheiti sem iðnfræðingur
  • Nemendur með sveinspróf geta sótt um meistarabréf í tilsvarandi iðngrein
  • Góð aðstaða til bóklegs og verklegs náms
  • Traust undirstaða
  • Hagnýt og raunhæf verkefni
Fara efst