Tilkynningar um ósæmilega hegðun
Hverskonar einelti, kynbundin eða kynferðisleg áreitni er ekki liðin við Háskólann í Reykjavík (sjá siðareglur HR).
Við slíkum tilfellum er brugðist samkvæmt viðbragðsáætlun þar sem meðal annars er tilgreint að nemendur sem telja sig hafa orðið fyrir eða orðið vitni að ósæmilegri hegðun á borð við einelti, kynbundna eða kynferðislega áreitni geti tilkynnt það til deildaforseta, forstöðumanna eða rektors.
Nemendur sem telja sig hafa orðið fyrir eða orðið vitni að ósæmilegri hegðun geta einnig fyllt út eftirfarandi form til að koma tilkynningu/ábendingu á framfæri. Tilkynningin berst til fagráðs HR sem tekur mál til skoðunar eða beinir í réttan farveg.