Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
8. janúar 2024

25 ára afmæli HR fagnað með fjölbreyttum hætti

Háskólinn í Reykjavík fagnaði 25 ára afmæli á árinu 2023 og var haldið upp á afmælið með ýmsum hætti.

Í lok janúar fór fram stefnumót rektora HR í tilefni afmælisins. Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, formaður stjórnar og Háskólaráðs HR, bauð gesti velkomna og ráðherra háskóla,- iðnaðar- og nýsköpunarmála, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, flutti ávarp. Á annað hundrað gestir komu á viðburðinn, þar á meðal Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, starfsfólk skólans, vinir og velunnarar.

Maður og kona sitja í hópi fólks í fyrirlestrarsal.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í afmælisfögnuði HR í janúar 2023.

Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, og fyrrverandi rektorar skólans, þau Guðfinna Bjarnadóttir, Svafa Grönfeldt og Ari Kristinn Jónsson, ræddu bakgrunn, sögu og framtíð háskólans sem leiðandi afls í nýsköpun, rannsóknum og vísindum bæði í máli og myndum. Í kjölfarið voru svo líflegar pallborðsumræður með rektorunum sem Svanhildur Hólm Valsdóttir, stjórnarmaður í HR, stýrði.

Landsliðsþjálfari Noregs, Google og Mount Sinai

Í maí fór síðan fram fyrsti afmælisfyrirlestur ársins en allar deildir skólans stóðu fyrir opnum fyrirlestrum í tilefni afmælisins. Fyrsti fyrirlesturinn var á vegum íþróttafræðideildar sem fékk Þóri Hergeirsson, þjálfara norska kvennalandsliðsins í handbolta, til að koma og fara yfir feril sinn og hvernig leið hans lá inn í heim íþróttanna.

Maður stendur og heldur fyrirlestur. Fyrir aftan hann er myndum varpað á vegg.
Þórir Hergeirsson hélt afmælisfyrirlestur íþróttafræðideildar.

Í lok ágúst var svo komið að afmælisfyrirlestri tölvunarfræðideildar. Dr. Elizabeth Churchill, yfirstjórnandi notendaupplifunar hjá Google, deildi þar sinni persónulegu sýn á fortíð, nútíð og framtíð samskipta manns og tölvu.

Kona stendur fyrir framan þéttsetinn fyrirlestrarsal og flytur erindi.
Dr. Elizabeth Churchill hélt afmælisfyrirlestur tölvunarfræðideildar.

Afmælisfyrirlestur sálfræðideildar var síðan haldinn í september. Fyrirlesari var Dr. Kristen Dams-O‘Connor, forstöðukona rannsóknarseturs um heilaáverka við Mount Sinai-sjúkrahúsið í New York. Fjallaði hún um áhrif heilaáverka og leiðir til að bæta lífsgæði þeirra sem verða fyrir alvarlegum heilaáverkum.

Kona stendur við púlt og flytur fyrirlestur. Fyrir aftan hana er myndvarpi sem varpar myndum upp.
Dr. Kristen Dams-O‘Connor hélt afmælisfyrirlestur sálfræðideildar.
Vindmyllur og skammtafræði

Í október voru tveir afmælisfyrirlestrar, annars vegar á vegum iðn- og tæknifræðideildar og hins vegar á vegum verkfræðideildar. Dr. Unnur Stella Guðmundsdóttir, forstöðumaður verkfræðisviðs hjá Siemens Gamesa Offshore, hélt fyrirlestur iðn- og tæknifræðideildar. Í fyrirlestrinum fjallaði Unnur Stella um vindorku á hafi úti í víðum skilningi og útskýrði meðal annars hvernig vindorkuver á hafi úti er byggt upp og hvernig orkan berst inn í flutningskerfin.

Kona stendur fyrir miðri mynd og heldur fyrirlestur fyrir hóp af fólki í skólastofu í Háskólanum í Reykjavík. Fyrir aftan hana eru glærur á skjám.
Dr. Unnur Stella Guðmundsdóttir hélt afmælisfyrirlestur iðn- og tæknifræðideildar.

Dr. Ronald Hanson hélt síðan fyrirlestur verkfræðideildar. Hann starfar við QuTech rannsóknastofnunina við Tækniháskólann í Delft í Hollandi. Í fyrirlestrinum fjallaði Ronald um upphaf skammtafræðinnar og hvernig Albert Einstein var ekki sáttur við suma þætti hennar.

Maður stendur við töflu og spjallar við nokkra nemendur. Hann hefur skrifað á töfluna og er að útskýra eitthvað fyrir nemendunum.
Eftir fyrirlestur Dr. Ronald Hanson spunnust líflegar umræður nemenda verkfræðideildar við fyrirlesarann um leyndardóma skammtafræðinnar.
Sjálfbærni og jafnræði

Í byrjun nóvember hélt viðskiptadeild svo sinn afmælisfyrirlestur. Dr. Concepción Galdón Sanz-Pastor sem leiðir sjálfbærnistarf viðskiptaháskóla IE í Madríd hélt erindi um vegferð skólans í átt að aukinni sjálfbærni. Í kjölfarið fóru svo fram pallborðsumræður um efnið.

Kona í hvítum jakka með dökkt krullað hár situr í pallborði og brosir breitt. Fyrir framan hana er hljóðnemi.
Dr. Concepción Galdón Sanz-Pastor hélt afmælisfyrirlestur viðskiptadeildar.

Afmælisfyrirlestur lagadeildar var síðastur í röðinni þar sem dr. Scott Brewer, lagaprófessor við Harvard háskóla, var fyrirlesari. Í fyrirlestri sínum velti Brewer upp þeirri spurningu hvort unnt sé að samræma kröfur til janfræðis, það er að allir eru jafnir (e. equality), og að vera framúrskarandi, það er að segja að vera betri eða skara fram úr öðrum (e. excellence), einkum í margvíslegum keppnum.

///

Reykjavik University celebrated its 25 years anniversary in 2023. Lots of events were held to mark the occasion, starting with a reunion of all of RU‘s presidents. Throughout the year every department at the university then held an anniversary lecture.

The lecturers came from around the world, among them Dr. Elizabeth Churchill, Senior Director of UX at Google, dr. Ronald Hanson from QuTech at Delft University in The Netherlands, dr. Concepción Galdón Sanz-Pastor from IE University in Madrid and dr. Scott Brewer, law professor at Harvard University.

8. janúar 2024
Nýjustu fréttirnar