Námið
Rannsóknir
HR

1. Markmið og tilgangur sérúrræða

Nemendur Háskólans í Reykjavík sem eru fatlaðir eða eiga við sértæka námsörðugleika að stríða eiga rétt á sérstökum stuðningi í samræmi við lög um háskóla nr. 63/2006 og lögum um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

    Markmið sérúrræða er að gera þeim kleift að stunda nám sitt án mismununar, þannig þeir hafi sambærileg tækifæri og aðrir til að nýta hæfileika sína til náms. Stuðningurinn felur ekki í sér að dregið sé úr eðlilegum námskröfum eða þeim hagað með öðrum hætti en almennt gildir.

    2. Skilgreiningar og réttur nemenda til sérúrræða

    Fatlað fólk er fólk með langvarandi líkamlega, geðræna eða vitsmunalega skerðingu eða skerta skynjun sem verður fyrir ýmiskonar hindrunum sem geta komið í veg fyrir fulla og árangursríka samfélagsþáttöku til jafns við aðra ef aðstoðar nýtur ekki við.[1] Þegar hömlun, fötlun eða skerðing er varanleg sækir nemandi um sérúrræði í upphafi náms og er skráður með sérúrræði út námstímann við HR.

    Sértækir námsörðugleikar vísa til námsörðugleika eða hamlana sem má rekja til slysa, langvinnra eða alvarlegra veikinda eða annara orsaka. Einnig geta nemendur sem hafa annað móðurmál en íslensku sótt um sérúrræði á þessum grundvelli, ef tungumál er talið hafa áhrif á námsframvindu eða námsmat. Þeir nemendur sem glíma við hamlanir sem líta má á sem tímabundnar og hægt er að vinna með, lækna eða gera viðráðanlegri, sækja um sérúrræði fyrir hverja önn eða fyrir skólaárið. Úrræði eru endurmetin við hverja umsókn.

    Sérúrræði eru aðstoð sem miðar að því að mæta þörfum nemenda, jafna aðstöðu þeirra til náms og tryggja sanngjarnt og eðlilegt tillit við námsmat vegna fötlunar eða sérþarfa.

    3. Gildissvið

    Reglur þessar taka til nemenda sem hafa verið formlega samþykktir til náms við Háskólann í Reykjavík samkvæmt inntökuskilyrðum viðkomandi deildar/námsbrautar sem í hlut á.

    4. Þjónusta við nemendur með fötlun eða sértæka námsörðugleika

    Nemendaráðgjöf HR hefur umsjón með þjónustu við fatlaða nemendur og nemendur með sértæka námsörðugleika. Þjónustan styður við markmið sérúrræðakerfisins og skal miða að því að tryggja nemendum raunhæft aðgengi að námi og tækifæri til að ná árangri á eigin forsendum. Þjónustan er veitt í samvinnu við nemandann sjálfan og getur falið í sér persónulega ráðgjöf, stuðning og eftirfylgni í samræmi við þarfir hvers og eins.

    5. Umsóknarferli

    Umsókn um sérúrræði skal berast Nemendaráðgjöf HR rafrænt í gegnum beiðnakerfi skólans fyrir auglýstan frest (1. október á haustönn og 1. mars á vorönn). Umsókn skal vera studd viðeigandi gögnum, s.s. greiningu frá viðurkenndum fagaðila sem starfar með hamlanir eða aðrar hindranir, læknisvottorði eða öðrum rökstuddum upplýsingum sem varpa ljósi á aðstæður nemanda.

    Nemendaráðgjöf HR fer yfir umsóknir og tekur ákvörðun um veitingu sérúrræða. Umsóknir eru afgreiddar með þeim hætti að nemandi fær svar í tölvupósti á HR netfang. Í tölvupóstinum eru tilgreind þau úrræði sem skólinn skuldbindur sig til að veita sem og gildistími þeirra, þ.e. hvort úrræði sé veitt tímabundið eða varanlegt út námstímann. Umsókn getur einnig verið hafnað eða óskað eftir frekari gögnum til stuðnings.

    6. Ákvörðun og framkvæmd

    Úrræði geta verið tímabundin eða varanleg og eru útfærð í samvinnu við Nemendaskrá og námsmat, kennara og deildir. Tryggja skal að framkvæmd úrræðanna sé í samræmi við samþykkt samkomulag. Dæmi um sérúrræði eru; lengri próftími, aðlagað prófumhverfi og notkun sértæks hugbúnaðar, svo sem talgervils. Ekki er um tæmandi talningu á þeim sérúrræðum sem í boði eru og leitast er við að mæta þörfum nemanda og óskum eftir fremsta megni og samkvæmt gildandi reglum.

    Skylt er að veita samþykkt úrræði við lokanámsmat námskeiðs.[2] Kennurum ber jafnframt að taka tillit til nemenda með samþykkt sérúrræði í öðrum námsmatsþáttum eftir því sem unnt er.

    Standi val á milli ólíkra úrræða sem veita nemanda sambærilegan stuðning er skólanum heimilt að ákveða hvaða úrræði verði veitt. Sérúrræði sem veitt eru á grundvelli reglna þessa eru nemendum að kostnaðarlausu. Þó greiðir skólinn ekki fyrir þau vottorð né greiningar sem skólinn óskar eftir frá nemendum.

    7. Endurmat og málskot

    Nemendur sem telja að sérúrræði séu ófullnægjandi eða sem hafa fengið höfnun umsóknar geta óskað eftir endurskoðun í samráði við Nemendaráðgjöf. Ef nemandi sættir sig ekki við þau úrræði sem Nemendaráðgjöf hefur boðið samkvæmt reglum þessum, eða er ósáttur við niðurstöðu umsóknar, er honum heimilt að skjóta máli sínu til sviðsstjóra Nemendaþjónustu HR. Ákvarðanir sviðsstjóra Nemendaþjónustu HR eru endanlegar innan skólans.

    8. Meðferð og vernd persónuupplýsinga

    Nemendaráðgjöf varðveitir umsóknir og meðfylgjandi trúnaðargögn um fatlaða nemendur og nemendur með sértæka námsörðugleika, í samræmi við lög og reglur sem gilda um starfsemi skólans. Við vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga er fyllsta öryggis gætt og unnið er með upplýsingar í samræmi við persónuverndarlög og innri reglur skólans. Nemendaráðgjöf miðlar eingöngu þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að starfsfólk geti komið að framkvæmd sérúrræða fyrir viðkomandi nemendur.

    9. Endurskoðun reglna

    Reglur þessar skulu endurskoðaðar á þriggja ára fresti frá gildistöku þeirra, eða oftar ef tilefni er til. Við endurskoðun skal meta hvort þörf sé á breytingum í ljósi fyrirliggjandi reynslu eða breytinga á lögum sem snerta starfsemi skólans.

    [1] Stuðst við skilgreiningu samkvæmt 2. tl. 1. mgr. 2. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
    [2] Kennari getur fengið upplýsingar um samþykkt sérúrræði nemenda sinna í SA-kerfi

    Reglur þessar voru samþykktar af framkvæmdaráði HR 6. janúar 2026

    Fara efst