Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Meistaranám við viðskipta- og hagfræðideild HR

Nemendur ná forskoti á vinnumarkaði með því að leysa raunhæf verkefni í samstarfi við fyrirtæki í fremstu röð

Meistaranám sem veitir forskot

Viðskipta- og hagfræðideild HR leggur metnað í framúrskarandi kennslu, virka þátttöku nemenda og náið samstarf við atvinnulífið með það að markmiði að útskrifa eftirsótta sérfræðinga og frumkvöðla. Öll námskeið eru í stöðugri þróun og endurskoðun til að tryggja að nemendur öðlist nýjustu þekkingu og hæfni til að takast á við breytilegt umhverfi.

Alþjóðleg meistaragráða á 1 ári

  • Sérvaldir prófessorar frá HR og virtustu háskólum Evrópu og N-Ameríku annast kennslu.
  • Val um 7 mismunandi meistaragráður.
  • Val um MSc-gráðu með lokaritgerð eða meistaragráðu án ritgerðar*
  • Kennsla á ensku*

Forskot á vinnumarkaði

  • Öflugt starfsnám og hátt hlutfall nemenda fær fast starf í kjölfarið. 
  • Fengist við raunhæf verkefni úr atvinnulífinu.
  • Fjöldi gestafyrirlesara úr atvinnulífinu.

*Á ekki við um meistaranám í reikningshaldi og endurskoðun

Sveigjanleiki í námi

  • Sveigjanlegt námsskipulag með staðarlotum.
  • Nemendur með fjölbreyttan bakgrunn úr grunnnámi eru velkomnir.

Alþjóðlegar vottanir

Executive MBA-námið er AMBA-vottað. Viðurkenningu sem aðeins um 3% viðskiptaháskóla í heiminum hafa öðlast. BSc-nám í viðskiptafræði er EFMD EPAS-vottað. HR er jafnframt aðili að PRME, verkefni Sameinuðu þjóðanna um ábyrga stjórnunarmenntun, og meðlimur í AACSB Business Education Alliance.

Hvað nemendur segja um námið

Hvað er í boði

Viðskiptafræði

Nám sem hentar þeim sem vilja sníða meistaranám í viðskiptafræði að eigin áhugasviði. Þetta er gert með vali í náminu og sveigjanleika. Hægt er að blanda saman fræðasviðum innan viðskiptafræði eða velja námskeið úr öðrum deildum við HR og auka þannig þverfaglega þekkingu.

- Námstími 1 ár
- Einingar 90 ECTS
- Prófgráða: MSc eða MBM

Fjármál fyrirtækja

Námið hentar þeim sem vilja sérhæfa sig í stjórnun og rekstri. Það veitir nemendum traustan fræðilegan bakgrunn í fjármálum auk þess sem þeir efla greiningarhæfni og hagnýtan skilning.

- Námstími 1 ár
- Einingar 90 ECTS
- Prófgráða: MSc eða MCF

Mannauðsstjórnun og vinnusálfræði

Megináherslan í náminu eru stjórnun, mannauðsmál og vinnusálfræði. Lögð er áhersla á að efla greiningarhæfni, samskiptafærni og getu til þróunar mannauðs og skipulagsheilda. 

- Námstími 1 ár
- Einingar 90 ECTS
- Prófgráða: MSc eða MHRM

Markaðsfræði

Nemendur geta  valið á milli þess að taka 90 ECTS eininga MSc-gráðu eða 90 ECTS eininga viðbótargráðu á meistarastigi. Hægt er að ljúka náminu á þremur önnum miðað við fullt nám á haust-, vor- og sumarönn

- Námstími 1 ár
- Einingar 90 ECTS
- Prófgráða: MSc eða MM

Reikningshald og endurskoðun

Námið fjallar um gerð reikningsskila og endurskoðun þeirra byggt á gildandi stöðlum og siðferðilegum viðmiðum. Einnig er fjallað um fjármál, skattaskil og félagarétt. Áhersla er lögð á greiningarhæfni, faglega dómgreind og gagnrýna hugsun við úrlausn mála tengdum reikningsskilum og annarri upplýsingagjöf fyrirtækja. Kennt er á íslensku og ensku.

- Námstími 1 ár
- Einingar 90 ECTS
- Prófgráða: MAcc

Stafræn stjórnun og gagnagreining

Nemendur læra meðal annars stjórnun, kerfisgreiningu og hönnun, greiningu á ýmsum tegundum gagna, vélnám, ferlastjórnun, gagnasafnsfræði og kostnaðargreiningu. Þeir byggja upp kunnáttu og færni í hönnun, þróun og innleiðingu upplýsingakerfa með tilliti til kerfislegra og viðskiptafræðilegra markmiða.

- Námstími 1 ár
- Einingar 90 ECTS
- Prófgráða: MSc eða MDMD

Stjórnun nýsköpunar

Nemendur læra að stýra nýsköpunarferlum og frumkvöðlastarfsemi, hvort sem það er í nýjum fyrirtækjum, frumkvöðlafyrirtækjum, stofnunum eða samtökum. 

- Námstími 1 ár
- Einingar 90 ECTS
- Prófgráða: MSc eða MINN

Algengar spurningar

Fara efst