Tölvunarfræðideild
Tölvunarfræðideild er sú stærsta sinnar tegundar hér á landi. Kennarar eru í fararbroddi á sínu fræðasviði og nemendur taka þátt í öflugu rannsóknar- og nýsköpunarstarfi í samstarfi við innlendar og erlendar rannsóknarstofnanir og fyrirtæki. Rík áhersla er á gæði kennslu og jafnvægi milli styrkrar fræðilegrar undirstöðu og hagnýtrar þekkingar á nýjustu tækni og aðferðum. Námið fer að einhverju leyti fram á ensku.
Edda Pétursdóttir, nemandi, lýsir ákvörðuninni að skrá sig í tölvunarfræði í HR.
Tölvunarfræði gerir þér kleift að taka þátt í spennandi framþróun iðnaðar og samfélags. Gagnavísindi, gervigreind, formlegar aðferðir, forritunarkunnátta og skapandi hönnun notendaviðmóta eru allt viðfangsefni sem snerta okkur meira með hverjum deginum. Í HR getur þú nælt þér í þessa ofurkrafta og notað þá til að breyta heiminum.
Henning Arnór Úlfarsson, deildarforseti tölvunarfræðideildar HR.
Rannsóknir
Rannsóknir í tölvunarfræðideild fara að verulegu leyti fram innan sérstakra rannsóknarsetra og þar gefst nemendum kostur á að vinna að spennandi verkefnum undir handleiðslu sérfróðra vísindamanna.
Rannsóknarsetrin vinna jafnframt að rannsóknum í samvinnu við innlenda og erlenda háskóla, fyrirtæki í atvinnulífinu og aðra samstarfsaðila. Rannsóknir eru stór þáttur í starfi flestra fastráðinna kennara við deildina og hefur framlag þeirra til rannsókna aukist ár frá ári. Tölvunarfræðideild hefur sett sér sérstaka stefnu í rannsóknum og birtir nú árlega skýrslu um rannsóknarvirkni deildarinnar í heild sinni.
Helstu rannsóknasvið:
- Gervigreind
- Tölvuöryggi
- Sýndarveruleiki
- Máltækni
- Samskipti manns og tölvu
- Hugbúnaðarverkfræði
- Gagnasöfn
- Fjártækni
- Fræðileg tölvunarfræði
Rannsóknasetur
Starfsfólk
Vísindamenn & fastráðnir kennarar
Stundakennarar
Akureyri og austurland
Skrifstofa deildar
Skrifstofa tölvunarfræðideildar er ekki með fastan skrifstofutíma en senda má póst á netfang deildarinar td@ru.is og óska eftir viðtali eða aðstoð.
Samstarf
Atvinnulífið
Lokaverkefni nemenda í BSc-námi eru hópverkefni sem unnin eru í samstarfi við kennara og oftast í samvinnu við fyrirtæki. Nemendur vinna með mismunandi fyrirtækjum ár hvert.
Starfsnám
Nemendur í tölvunarfræðideild hafa möguleika á að sækja um að fara til Bandaríkjanna í starfsnám við hina virtu Fraunhofer-rannsóknarstofnun í Maryland eða til þýska fyrirtækisins Härte- und Oberflächentechnik GmbH & Co sem staðsett er í Nürnberg.
Nemendur fá borguð laun meðan á starfsnáminu stendur og algengast er að nemendur fari í sex mánuði í senn.
Háskólinn á Akureyri
Samstarf tölvunarfræðideildar HR og Háskólans á Akureyri gerir íbúum á Norðurlandi kleift að sækja BSc-nám í staðarnámi á Akureyri. Fyrir norðan hlýða nemendur á fyrirlestra á netinu en eru með kennara á svæðinu sem sér um dæmatíma. Í náminu á Akureyri er lögð áhersla á forritun og leikjahönnun. Verkefnastjóri við HA heldur utan um nemendur og námið fyrir norðan.
Samstarf við alþjóðlega háskóla
Samstarf við UNICAM
Tölvunarfræðideild HR og tækni- og vísindadeild Háskólans í Camerino (UNICAM) bjóða upp á meistaragráðu í tölvunarfræði (120 ECTS) með útskrift úr báðum skólum.
Í lok námsins fá nemendur eftirfarandi titla:
- Master in Computer Science (MSc) frá Háskólanum í Reykjavík og
- Laurea Specialistica/Magistrale in Informatica (Master in Computer Science) frá The Faculty of Science and Technology of UNICAM.
Styrkir
Hægt er að sækja um Erasmus styrki í gegnum alþjóðaskrifstofuna fyrir ferðakostnaði og uppihaldi.

Deildarforseti
Upplýsingar fyrir nemendur
Stundatöflur eru birtar í kennslukerfi HR inni á Canvas. Stundatöflur eiga að birtast áður en að kennsla hefst. Ef nemendur þurfa nauðsynlega að kynna sér stundatöflur fyrir þann tíma má senda fyrirspurn á netfangið td@ru.is
- Reglur um grunnnám í tölvunarfræðideild (Reglur um inntöku nemenda, prófkröfur, endurtöku prófa og námsframvindu).
- Reglur um meistaranám í tölvunarfræðideild
- Meistaranám í gervigreind og máltækni
- Doktorsreglur í tölvunarfræði (frá október 2024)
- Eldri doktorsreglur í tölvunarfræði (2022-2024)
- Enn eldri doktorsreglur í tölvunarfræði (2018-2022)
- Almennar náms- og námsmatsreglur
- Siðareglur HR
- Reglur um notkun gervigreindar í námi (AI policy)
Skipt um braut
Nemendur geta sótt um að skipta um námsbraut innan tölvunarfræðideildar. Vinsamlegast sendið tölvupóst á td@ru.is en umsóknin er svo lögð fyrir Námsmatsnefnd.
Ef nemendur vilja skipta frá verkfræði yfir í tölvunarfræði eða útskrifast með báðar gráður ber að fara eftir ákveðnum reglum við uppsetningu námsins. Vinsamlegast sendið tölvupóst á td@ru.is og óskið eftir leiðbeiningum. Athugið að ætíð þarf samþykki frá námsmatsnefnd fyrir brautarskiptum og uppsetningu námsins.
Framlag

Tölvunarfræðideild leggur sitt af mörkum fyrir samfélagið á ýmsan hátt, til dæmis með átaksverkefnum, áherslum í innra starfi og kennslu í tölvu- og netöryggi. Kennd eru námskeið bæði á grunn- og meistarastigi þar sem farið er yfir siðferðileg mál í tölvunarfræði. Nemendur ljúka jafnframt námskeiðum þar sem þeir læra að efla tölvu- og netöryggi.
Eins hefur deildin unnið markvisst að því að stuðla að jöfnu kynjahlutfalli meðal kennara námsins og að jafna hlutfall kynja í nefndum deildarinnar. Tölvunarfræðideildin tekur þátt í verkefninu Stelpur og tækni en þar er markmiðið að vekja áhuga stelpna á þeim ýmsu möguleikum sem tækninám hefur upp á að bjóða.
Skipulag
Deildarforseti
Henning Arnór Úlfarsson hefur gegnt stöðu deildarforseta tölvunarfræðideildar frá árinu 2023.
Ráð og nefndir
Hlutverk nefndarinnar er að afgreiða beiðnir um mat á námi/námskeiðum í grunnnámi úr öðrum skólum. Erindum til námsmatsnefndar, eins og gögn frá fyrra námi, skal beina til td@ru.is.
Í námsmatsnefnd skólaárið 2024-2025 sitja:
- Steinunn Gróa Sigurðardóttir, forstöðukona grunnnáms
- Yngvi Björnsson, prófessor
- Drífa Skúladóttir, verkefnastjóri BSc náms
- Eyrún Eva Haraldsdóttir, verkefnastjóri BSc náms